
|
HvolparISShCh Tara og ISShCh Vadászfai Oportó verða pöruð nú
í nóvember 2011. Og ef allt gengur að óskum ættu að hvolparnir að
fæðast í kringum mánaðarmótin janúar febrúar. Vizslur eru þægileigir og
skemmtilegir heimilishundar sem eiga auðvelt með að læra og hlýða. Þær
þurfa góða hreyfingu enda orkumiklir. Vizslan er standandi fuglahundur
sem bendir og sækir
Tara er einstaklega þægilegur og skemmtilegur hundur
með mikinn karekter. Hún er i mjög góðu líkamlega formi enda fær hún
mikla og fjölbreytta hreyfingu. Tara er fædd 7. febrúar 2008 og er ég
Óli Valdín eigandi hennar. Hægt að sjá myndir af henni hér á
myndaalbúms síðunni. Tara er íslenskur sýningameistari með fimm Ísl.
meistarastig og fjögur alþjóðleg. Umsókn um alþjóðlegan meistaratitil
liggur inni hjá HRFÍ. Við höfum tekið þátt í einu fuglahundaprófi í
unghundaflokki en náðum ekki einkunn.
- Sýningaárangur Töru
- 28,02,09, Rvk, Ungliðaflokkur: Very good, 1 sæti.
- 04,10,29, Rvk, Unghundaflokkur: Exelent, ísl,m. alþjóðlegt m.stig, BT 1. BHT 1.
- 06,06,10, Rvk, Opinn flokkur, Exelent, ísl,m. BT 1. BHT 1. TH 4.
- 28,02,10, Rvk, Opinn flokkur, Exelent, Ísl,m. alþjóðlegt m.stig, BT 1. BHT 2.
- 21,11,10, Rvk, Opinn flokkur, Exelent, Ísl,m. alþjóðlegt m.stig, BT 1. BHT 2.
- 27.06,11, Rvk, Meistaraflokkur, Exelent, Ísl,m. alþjóðlegt m.stig, BT 1. BHT 2.
- Námskeið Töru
- 2008 Gallerí Voff Grunnnámskeið, Einkunn fyrir hlýðniæfingar 9,8
- 2009 Retriever hlýðni, Einkunn fyrir hlýðniæfingar 10.
Oportó var fluttur inn til landsins sumarið 2010 frá
Ungverjalandi og er hann kærkomin viðbót við vizslustofn landsins og er
hann geðgóður og kraftmikil vizsla. Oportó er fæddur 19. júní 2008 og
er Hildur Vilhelmsdóttir eigandi hans. Hildur heldur úti vefsíðunni www.vizsla.is
og er hægt að sjá frekari upplýsingar um Oportó þar. Oportó er
íslenskur sýningameistari, og hefur hann m.a. náð þeim góða árangri að
hafna í 3. sæti í besti hundur sýningar í Ungverjalandi.
- Sýningaárangur Oportós
- 17,04,10 Slóvenía, Opinn flokkur, Exelent, slóvenískt m.stig, alþjóðlegt m.stig,
- 16,05,10. Ungverjaland, Opinn flokkur, Exelent, ungverskt m.stig, alþjóðlegt m.stig, BHT 1, TH 1, BHS 3.
- 28,08,10. Rvk, Opinn flokkur,Exelent, ísl. m.stig, alþjóðlegt m.stig, BHT 1.
- 04,06,11. Rvk Opinn flokkur, Exelent, ísl. m.stig, alþjóðlegt m.stig, BHT 1, TH 3.
- 27,08,11. Rvk. Opinn flokkur, Exelent, ísl. m.stig, alþjóðlegt
m.stig BHT 1.
- Námskeið Oportós
- Grunnveiðiþjálfun í Ungverjalandi
Báðir hundarnir hafa verið mjaðmamyndaðir og er Oportó myndaður með niðurstöðuna HD: A/B og Tara mynduð með niðurstöðina HD: A/A
Nánari upplýsingar um framvindu mála verða birtar hér
á síðunni . Ef áhugi er fyrir hendi þá mæli ég með því að fólk hafi
samband við mig svo það geti kynnst Töru og tegundinni. Hægt er að ná í
mig í síma 698-6160 eða senda mér tölvupóst á slóðina vizslur@vizslur.net.
Flettingar í dag: 108 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 55 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 30420 Samtals gestir: 11463 Tölur uppfærðar: 21.5.2012 01:31:51
|
|

|
|

|