01.12.2011 22:18
Rocky er 3ja ára rakki sem leitar að góðu heimili og vönu hundafólki,
þar sem hann getur fengið þá útivist og ögrun sem hann þarfnast. Hann er
vanur mikilli hreyfingu og miklu atlæti.
Hann er mjög naskur að finna fugla og fer í pointer stellingu, en hann
hefur ekki verið þjálfaður í veiði. Foreldrar eru Hugó og Jaðar Dixie.
Upplýsingar í síma 820-5260 eða
agust@linan.isMynd af Rocky er að finna í myndaalbúinu undir vizslur.
04.11.2011 22:07
Þá er komið að nóvembergöngu hjá okkur næsta sunnudag eða 6. nóv. Ætlunin er að hittast við Kleifavatn eins og síðast, klukkan 11:00. Allir velkomnir.
24.10.2011 22:36
Væntanlegt er nýtt vizslugot ef allt gengur að óskum. ISShChTara verður pöruð saman við ISShCh Vadászfai Oportó núna í nóvember. Óhætt er að segja að hér sé um spennandi pörun að ræða en Tara og Oportó hafa góðan sýningaferil að baki og eru þau bæði íslenskir sýningameistarar. Nánari upplýsingar um Töru, Oportó og gotið verður að finna hér á síðunni undir liðnum Got. Eins eru myndaalbúm af Töru á síðunni. Eigandi Töru er ég, Óli Valdín, og geta allir áhugasamir haft samband við mig í gegnum netfangið
vizslur@vizslur.net eða í síma 698-6160.
04.10.2011 22:27
Næsta ganga hjá okkur verður að þessu sinni sunnudaginn 9. okt. Ætlunin er að hittast við Kleifarvatn á Reykjanesi kl 11:00. Allir velkomnir.
04.10.2011 22:14
Vadászfai Oportó í eigu Hildar Vilhelmsdóttur er orðinn Íslenskur sýningameistari, og óskum við þeim til hamingju með árangurinn. Til að hljóta titilinn íslenskur sýningameistari þarf hundur að fá þrjú
íslensk meistarastig á HRFÍ sýningum hjá þremur dómurum og eitt af þeim
eftir tveggja ára aldur.
Hundur sem hlotið hefur titilinn íslenskur sýningameistari fær meistaranafnbótina ISShCh.
04.10.2011 20:56
Mikið fjör var á haustsýningu HRFÍ sem haldin var 27. ágúst, en þá voru sýndar 6 vizslur sem að sjálfsögðu fengu allar flotta dóma. Óhætt er að segja að Hildur Vilhelmsdóttir sem er með Holtabergsræktun megi vera stolt af sinni ræktun. Fjórar vizslur frá henni voru sýndar í hvolpaflokki og fengu þær allar heiðursverðlaun. Besti hvolpur var tegundarinnar var svo Holtabergs Amíra Fjóla. Allir hvolparnir fengu verðlaunapening sem Holtabergsræktun gaf. Þá var í opnum flokki sýndur Vadászfai Oportó sem var svo valinn Besti hundur tegundar I með flotta umsögn frá dómaranum. Oportó fékk bæði ísl. og alþjóðlegt meistarastig. Þetta var hans þriðja ísl. meistarstig, en það er það sem til þarf til að hljóta titilinn Íslenskur sýningameistari. Bæði Oportó og Amíra Fjóla eru í eigu Hildar og óskum við henni til hamingju með glæsilegan árangur. Þá var tíkin mín hún Tara sýnd í meistaraflokki, fékk hún fína dóma og sitt fjórða alþjóðlega meistarastig. Fjögur alþjóðleg meistarastig þarf til að hljóta titilinn Alþjóðlegur sýningameistari. Tara var valin Besti hundur tegundar II,
Hvolpaflokkur 6-9 mánaða
Rakkar
Holtabergs Astor: 1. sæti, heiðursverðlaun
Holtabergs Atlas: 2. sæti, heiðursverðlaun
Tíkur
Holtabergs Amíra Fjóla: 1. sæti, heiðursverðlaun. Besti hvolpur tegundar
Holtabergs Apríl Lukka: 2. sæti, heiðursverðlaun
Opinn flokkur rakkar
Vadázsfai Oportó: Exelent, ísl. meistarastig, CACIB, Besti hundur tegundar I.
Meistaraflokkur Tíkur
Tara: Exelent, CACIB, Besti hundur tegundar II.
04.10.2011 20:24
Sótthreinsun og þrif hefur veitt vizslur.net styrk til kaupa á farandsbikurum á haustsýningu og nóvembersýningu HRFÍ. Keyptir verða tveir bikarar fyrir hvora sýningu og verða þeir veittir þeim vizslum sem keppa til úrslita um besta hund tegundar. Þ.e.a.s. Besti hundur tegundar I og Besti hundur tegundar II. Verðlaunahafi hefur bikarinn til umráða í eitt ár.
Styrktaraðila vantar enn til kaupa á farandbikurum fyrir febrúar og sumarsýningar HRFÍ.
03.09.2011 14:30
Næsta vizsluganga verður sunnudaginn 4. september klukkan 11:00. Ætlum við að hittast hjá Morgunblaðshúsinu við Rauðavatn. Að venju eru allir velkomnir í gönguna.
03.07.2011 00:53
Þá er komið að næstu göngu hjá okkur og er ætlum að ganga í Öndverðaneslandi í Grímsnesi. Gangan er næsta sunnudag, 3. júlí klukkan 13:00. Ætlum við að hittast á bílaplaninu hjá söluskálanum í Þrastarskógi. Keyrt er austur Suðurlandsveg frá Reykjavík og beygt upp Biskupstungnabraut, hjá Ingólfsfjalli, að söluskálanum í Þrastarskógi.
14.06.2011 22:48

Tvær vizslur voru sýndar á sumarsýningu HRFÍ, Oportó í eigu Hildar Vilhelmsdóttur og Snilld í eigu Önnu Kristínar og Guðmundar.
Oportó fékk góða umsögn og var valinn besti hundur tegundar. Í úrslitum tegundarhóps 7 náði hann einnig góðum árangri og hafnaði í 3. sæti. Óskum við Hildi og Oportó til hamingju með frábæran árangur.
Opinn

flokkur rakkar
Oportó: Exelent, 1. sæti, Ísl.meistarastig, CACIB, Besti hundur tegundar 1.sæti, TH 3. sæti.
Opinn flokkur tíkur
Snilld: Good
06.05.2011 23:11
Fuglahundadeild, Vorstehdeild og Írsk Setter deild verða með æfingar
fyrir Alhliðaveiðiprófið sem verður 18-19 Júní. Við byrjum með
fyrirlestri núna á mánudaginn 9. maí kl. 20:00 í Sólheimakoti.
Albert hundaþjálfari verður með þennan fyrirlestur og svo æfingar alla
mánudagana fram að prófi. Fyrirhugað verður að hafa æfingar einnig á
fimmtudögum en það verður kynnt á þessum fyrsta hittingi okkar á
mánudagskvöldið. Allir sem eiga fuglahunda og vilja taka þátt ættu
endilega að mæta því þetta er frábært tækifæri að gera góðan hund enn
betri. Allir að taka með sér 1000 kr.
Vonum að sem flestir sjái sig fært um að mæta og um að gera að hafa
spurningar á reiðum höndum því Albert er mjög reyndur þegar kemur að
t.d. sporavinnu og vatnavinnu/sækivinnu.
Hvet ég vizslueigendur til að mæta á fyrirlesturinn og kynna sér málið en alhliða veiðiprófsæfingar henta vizslum vel.
29.04.2011 22:49
Næsta vizsluganga verður að þessu sinni sunnudaginn 8. maí klukkan 13.00. Ætlunin er að ganga í Jósepsdal og myndum við hittast á bílaplaninu hjá motorcross
brautinni á móts við Litlu Kaffistofunna á Suðurlandsvegi. Er þá beygt
útaf Suðurlandsvegi til hægri ef keyrt er í austur frá Reykjavík.
02.04.2011 16:02
Næsta ganga verður sunnudaginn 3. apríl klukkan 13:00. Ætlum við að hittast við afleggjarann að Sólheimakoti á Hafravatsvegi og ákveða þar hvert við göngum. Hér er að finna kort
http://fuglahundadeild.is/Sidur.aspx?ArticleID=445.
28.02.2011 23:45
Þann 18. febrúar komu 6 vizsluhvolpar í heiminn. Eru þeir undan C.I.E. ISShCh Jarðar Fífu og Vadászfai Oportó. Eru þetta 4 tíkur og 2 rakkar. Eigandi hundanna er Hildur Vilhelmsdótt og geta allir áhugasamir haft samband við hana í netfangið
hildur@vizsla.is eða í gegnum heimasíðu hennar
www.vizsla.is en þar eru myndir og allar upplýsingar um hundana. Einnig eru nánari upplýsingar hér á síðunni undir got.